Dönsku meistararnir í kvennaliði SISU sem Hrannar Hólm þjálfar heimsóttu BK Amager í gær og sigruðu 74-67 í æsispennandi leik.
Miklar kröfur eru gerðar til SISU þennan veturinn. Liðið er ríkjandi meistari og fór næstum taplaust í gegnum síðasta tímabil. Þá ætlar liðið að taka þátt í Evrópukeppni en mörg ár eru síðan danskt kvennalið hefur gert það.
Lið Amager er skipað ungum leikmönnum en þær héldu SISU á tánum í gær og þegar rúm mínúta var eftir var aðeins þriggja stiga munur en SISU kláraði þetta með 7 stiga sigri. Trine Duelund var stigahæst hjá SISU með 18 stig en Kiki Lund fyrrverandi leikmaður Hauka skoraði 8 stig.
Mynd: SISU