Sigrún Björg Ólafsdóttir og Chattanooga Mocs lögðu Western Carolina Catamounts í gærkvöldi í bandaríska háskólaboltanum, 48-55.
Leikurinn var sá þriðji sem að Chattanooga vinnur í röð, en þær sitja nú í þriðja sæti Southern deildarinnar með þrjá sigra og eitt tap í deildinni það sem af er tímabili.
Á 38 mínútum spiluðum skilaði Sigrún 4 stigum, 2 fráköstum og 4 stoðsendingum.
Næsti leikur Sigrúnar og Chattanooga er á morgun laugardag 22. janúar gegn UNC Greensboro Spartans.