spot_img
HomeFréttirSigrún Björg og Chattanooga lutu í lægra haldi gegn Furman

Sigrún Björg og Chattanooga lutu í lægra haldi gegn Furman

Sigrún Björg Ólafsdóttir og Chattanooga Mocs máttu þola tap fyrir Furman Paladins í gærkvöldi í bandaríska háskólaboltanum, 64-43.

Eftir leikinn er Chattanooga í 5. sæti Southern deildarinnar með fimm sigra og átta töp það sem af er tímabili.

Á 30 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sigrún Björg 7 stigum, 4 fráköstum, stoðsendingu og stolnum bolta.

Næsti leikur Sigrúnar og Chattanooga verður lokaleikur þeirra í deild þetta tímabilið, en hann er nú í kvöld gegn Wofford Terriers.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -