Sigrún Björg Ólafsdóttir og Chattanooga Mocs máttu þola 10 stiga tap í gær fyrir Samford Bulldogs í bandaríska háskólaboltanum, 77-67.
Eftir leikinn er Chattanooga í 5. sæti Southern deildarinnar með fjóra sigra og fimm töp í deildinni það sem af er tímabili.
Á 36 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sigrún 15 stigum, 5 fráköstum, 3 stoðsendingum og stolnum bolta.
Næsti leikur Sigrúnar og Chattanooga er þann 12. febrúar gegn East Tennessee State Bucs.