spot_img
HomeFréttirSigrún Björg frákastahæst gegn Wofford Terriers

Sigrún Björg frákastahæst gegn Wofford Terriers

Sigrún Björg Ólafsdóttir og Chattanooga Mocs máttu þola tap fyrir Wofford Terriers í gær í bandaríska háskólaboltanum, 53-76.

Eftir leikinn er Chattanooga í 3. sæti Southern deildarinnar með 6 sigra og 15 töp það sem af er tímabili.

Sigrún hafði hægt um sig í stigaskorun í leiknum en skilaði 7 fráköstum, 4 stoðsendingum og 2 stolnum boltum á 25 mínútum spiluðum.

Næsti leikur Sigrúnar og Chattanooga er á morgun laugardag 29. janúar gegn Furman Paladins.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -