Sigrún Björg Ólafsdóttir og Chattanooga Mocs töpuðu með þremur stigum fyrir East Tennessee State Bucks í gærkvöldi í bandaríska háskólaboltanum, 65-62.
Eftir leikinn er Chattanooga í 5. sæti Southern deildarinnar með fjóra deildarsigra og sex töp það sem af er tímabili.
Á 36 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sigrún Björg 8 stigum, 6 fráköstum, 3 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.
Næsti leikur Sigrúnar og Chattanooga er þann 18. febrúar gegn UNC Greensboro Spartans.