spot_img
HomeFréttirSigmundur dæmir í Euroleague kvenna

Sigmundur dæmir í Euroleague kvenna

Sigmundur Már Herbertsson FIBA dómari fékk á dögunum tilnefningu í alþjóðlegt verkefni í Frakklandi í lok október. Sigmundur dæmdi eins og frægt er á EuroBasket í sumar í riðlinum sem fram fór í Lettlandi og stóð sig vel. 

Sigmundur mun á miðvikudaginn kemur 28. október dæma leik Tango Bourges Basket og AGÜ Spor frá Tyrklandi í Meistaradeild kvenna (Euroleague Women) en leikurinn fer fram í Bourges í Frakklandi.

Meðdómarar Sigmundar verða Gintaras Vitkauskas frá Litháen og Ernad Karovic frá Bosníu og Hersegóvínu. Eftirlitsmaður er Alison Muir frá Englandi.

Frétt af www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -