spot_img
HomeFréttirSigmundur dæmir í 16 liða úrslitum EuroCup kvenna

Sigmundur dæmir í 16 liða úrslitum EuroCup kvenna

13:22 

{mosimage}

 

 

Sigmundur Már Herbertsson hefur fengið tilnefningu frá FIBA Europe til að dæma leik í 16 liða úrslitum EuroCup kvenna.

Um er að ræða seinni leik rússneska liðsins Nadezhda og franska liðsins ESB Lille Metropole, en fyrri leikurinn fór fram í gærkvöld í Rússlandi, þar sem heimastúlkur höfðu sigur 72-69.

Seinni leikurinn fer fram í Frakklandi 8. febrúar næstkomandi og er Sigmundur aðaldómari leiksins, en meðdómari hans er Vincent Delestree frá Belgíu. Eftirlitsmaður er Victor Maas frá Spáni.

Frétt af www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -