10:06
{mosimage}
Í gær léku Hollendingar við Hvíta Rússland í b riðli B-deildar Evrópukeppni landsliða og dæmdi Sigmundur Már Herbertsson leikinn.
Mikil eftirvænting var fyrir leiknum þar sem Fransesco Elson leikmaður með San Antonio Spurs var að leika með Hollendingum. Elson var sterkur og skoraði m.a. 21 stig og var stigahæstur í liði heimamanna. Leikurinn var spennandi og skemmtilegur en Holland hafði sigur á endanum 77:72
Sigmundur fékk fína dóma fyrir sína frammistöðu í leiknum.
Mynd: Gunnar Freyr Steinsson