19:23
{mosimage}
Shell-liðið undir stjórn Jóns Halldórs Eðvaldssonar vann Stjörnuleik kvenna í DHL-höllinni í dag. Shell-liðið vann 112-76 sigur á Esso-liði Ágústs Björgvinssonar.
Ifeoma Okonkwo, leikmaður Hauka og Shell-liðsins, var valin maður leiksins en hún skoraði 23 stig á móti liði þjálfara síns. Keflvíkingarnir Birna Valgarðsdóttir og Kesha Watson, voru einnig atkvæðamiklar hjá Shell-liðinu, Birna með 19 stig og Watson með 17.
{mosimage}
Hildur Sigurðardóttir, leikmaður Grindavíkur, vann sigur í þriggja stiga keppninni sem fór fram samhliða leiknum. Hildur þurfti bráðabana til þess að tryggja sér sigur í úrslitunum á móti Stellu Rún Kristjánsdóttur úr ÍS.
Texti: www.kki.is
Myndir: [email protected]
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}