spot_img
HomeFréttirShaq klár fyrir leikinn gegn Dallas?

Shaq klár fyrir leikinn gegn Dallas?

11:10 

{mosimage}

 

 

NBA meistarar Miami Heat sakna sárlega miðherja síns Shaquille O´Neal sem hefur verið meiddur bróðurpartinn af yfirstandandi leiktímabili. Shaq hefur aðeins leikið fjóra leiki með meisturunum og sér stórlega á Miami liðinu. Í fyrsta lagi verður hann leikfær á sunnudag þegar Heat mæta sjóðheitu liði Dallas Mavericks.

 

Shaq hefur verið að jafna sig eftir aðgerð í vinstra hné en í gærkvöldi missti hann af viðureign Indiana og Heat og í kvöld verður hann ekki með þegar Heat mæta Philadelphia 76ers. Vonast er til að Shaq verði klár á sunnudag þegar Heat og Dallas mætast en þessi lið léku til NBA úrslita í fyrra þar sem Heat höfðu betur í sex leikjum.

 

Á fimmtudag var það þrítugasti og annar leikurinn sem Shaq var ekki með Heat er liðið mætti Indiana en á miðvikudag fyrir leikinn tók Shaq þátt í æfingu liðsins í fyrsta sinn í langan tíma.

 

Þegar Shaq snýr til baka verður það í fyrsta sinn síðan liðið varð NBA meistari að hægt verður að stilla upp því liði sem vann titilinn en Dwyane Wade og Jason Williams hafa báðir átt við meiðsli að stríða á þessari leiktíð.

 

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -