Elvar Már Friðriksson og Maroussi máttu þola fjögurra stiga tap gegn Lavrio í grísku úrvalsdeildinni í dag, 80-84.
Á tæpum 29 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Elvar Már 16 stigum, 3 fráköstum og 5 stoðsendingum, en hann var næst framlagshæstur í liði Maroussi í leiknum.
Maroussi er eftir leikinn í 11. sæti deildarinnar með 9 stig.