Serbía og Litháen sigruðu leiki sína í fjórðungsúrslitum Eurobasket 2015 í kvöld og munu því mætast í undanúrslitunum. Serbía sigraði Tékkland 89-75 en Litháen sigruðu Ítali rétt í þessu í æsispennandi framlengdum leik, 85-95.
Zoran Erceg leiddi serbneska liðið með 20 stig og 3 fráköst en stigahæstur Tékka var Jan Vesely með 23 stig og 10 fráköst. Töframaðurinn Milos Teodosic lauk leik með 14 stoðsendingar. Jonas Valanciunas átti frábæran leik fyrir Litháen í sigrinum á Ítölum 26 stig og 15 fráköst, en Andrea Bargnani leiddi ítalska liðið með 21 stig og 5 fráköst.
Spánverjar og Frakkar munu því mætast í undanúrslitum annað kvöld kl. 19:00 en Serbar og Litháen mætast hins vegar á föstudagskvöldið á sama tíma. Leikur Ítalíu og Tékklands er á morgun kl: 16:30 og leikur Grikklands og Lettlands kl. 14:00 en þessi lið leika um sætin undir 4. sæti.
Mynd: Milos Teodosic lauk leik með 14 stoðsendingar í kvöld. (HT)