spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaSemur við Værløse Blue Hawks

Semur við Værløse Blue Hawks

Þorgrímur Starri Halldórsson mun samkvæmt heimildum Körfunnar ganga til liðs við Værløse Blue Hawks í Danmörku fyrir komandi tímabil.

Starri er 21 árs, 208 cm miðherji að upplagi úr Fjölni, en hefur ásamt þeim leikið fyrir KR, Selfoss og nú síðast Íslandsmeistara Vals. Þá var hann á sínum tíma einnig hluti af yngri landsliðum Íslands.

Værløse leika í efstu deildinni í Danmörku og eru staðsettir í úthverfi höfuðborgarinnar Kaupmannahafnar. Á síðasta tímabili enduðu þeir í sjötta sæti dönsku deildarinnar með 10 sigra og 10 töp í fyrri hluta deildarkeppnar og 12 sigra og 18 töp í seinni hlutanum, þar sem leikið var innbyrðis milli sex efstu liða fyrri hlutans.

Fréttir
- Auglýsing -