spot_img

Semur við Þór

Þór hefur samið við Marcus Brown fyrir komandi tímabil í Bónus deild karla.

Marcus er 26 ára bandarískur bakvörður með ítalskt vegabréf, en hann kemur til liðsins frá Virtus Ragusa á Ítalíu. Þar skoraði hann 20 stig og gaf 5 stoðsendingar að meðaltali í leik á síðustu leiktíð. Samkvæmt fréttatilkynningu segist Lárus þjálfari Þórs að það verði spennandi að fylgjast með Marcus í Þórsbúningnum þar sem hann er fjölhæfur bakvörður sem getur leyst nokkrar stöður á vellinum ásamt því að vera hörku varnarmaður.

Fréttir
- Auglýsing -