spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaSemur við Keflavík til 2026

Semur við Keflavík til 2026

Emelía Ósk Gunnarsdóttir hefur endurnýjað samninga sína við meistara Keflavíkur fyrir komandi tvö tímabil í Subway deildinni. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.

Emelía er 26 ára gömul að upplagi úr Keflavík og hóf að leika fyrir meistaflokk þeirra árið 2014. Síðan þá hefur hún með hléum leikið fyrir félagið og verið mikilvægur leikmaður í sterkum liðum þeirra. “Ég er afar spennt fyrir komandi tímabili. Við erum með spennandi lið, við þekkjum hvor aðra inn og út og svo var að koma inn þjálfari sem er hokinn af reynslu og á án efa eftir að setja sinn svip á okkar lið. Síðasta tímabil var auðvitað algjör draumur og það er ekkert sem segir að það næsta geti ekki verið það líka.” Sagði Emelía eftir að samningar voru í höfn.

Fréttir
- Auglýsing -