spot_img

Semur við Fjölni

Fjölnir hefur samið við Sæþór Elmar Kristjánsson fyrir komandi átök í fyrstu deild karla.

Sæþór Elmar lék á síðasta tímibili með Hetti Egilsstöðum, en hann er að upplagi úr ÍR þar sem hann hefur leikið lengst af sínum ferli. „Það er mikill heiður að fá Sæþór til okkar,“ sagði Borche Ilievski þjálfari Fjölnis. „Hann er reynslumikill leikmaður sem er þekktur fyrir frábæra skothæfileika sína og við erum spenntir að fá hann í okkar leikmannahóp.“

Fréttir
- Auglýsing -