spot_img

Semur í Stapagryfjunni

Njarðvík hefur á nýjan leik samið við Ena Viso fyrir komandi átök í Bónusdeild kvenna.

Ena er 31 árs danskur bakvörður sem kom til liðs við Njarðvík síðasta sumar og var einn af máttarstólpum liðsins síðastliðið tímabil, en hún skilaði 13 stigum, 7 fráköstum og 4 stoðsendingum að meðaltali í leik á síðasta tímabili.

„Viso kemur með reynslu inn í bakvarðasveitina okkar en hún ásamt Hesseldal og Dinkins leiða áfram ungan og efnilegan hóp í Njarðvík á komandi tímabili. Ég sá nokkuð til Viso á síðustu leiktíð og tel hana vera mikilvægan liðsmann fyrir komandi verkefni hjá okkur,” sagði Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkurliðsins.

Fréttir
- Auglýsing -