spot_img

Semur á Selfossi

Ísak Júlíus Perdue hefur framlengt samningi sínum við Selfoss fyrir komandi tímabil í fyrstu deild karla.

Ísak er 20 ára bakvörður sem er að upplagi úr Þorlákshöfn, en hefur leikið fyrir Selfoss síðan tímabilið 2022-23 og verður það næsta því hans þriðja með liðinu. Vegna meiðsla var hann ekki mikið með liðinu eftir áramót, en á síðasta heila tímabili sem hann spilaði fyrir Selfoss skilaði hann 12 stigum, 4 fráköstum og 7 stoðsendingum að meðaltali í leik.

Fréttir
- Auglýsing -