spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaSemja við tvo atvinnumenn

Semja við tvo atvinnumenn

Stjarnan hefur samið við þá Jase Febres og Shaquille Rombley fyrir komandi tímabil í Bónus deild karla. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum í gær.

Jase kemur til Stjörnunnar með reynslu úr Texas háskólanum, þar sem hann lék í Big12 deildinni, einni sterkustu D1 deildinni í Bandaríkjunum. Á síðustu tveimur tímabilum hefur hann spilað í BSN deildinni í Puerto Rico.

Shaq kemur til Stjörnunnar eftir að hafa orðið meistari í Austurríki á síðasta tímabili og hefur áður leikið í neðri deildum Þýskalands. Einnig á hann að baki frábæra reynslu úr sterku D2 prógrammi hjá Lincoln Memorial í Bandaríkjunum.

Fréttir
- Auglýsing -