spot_img
HomeNeðri deildir2. deild karlaSemja við tólf leikmenn

Semja við tólf leikmenn

Vestri hefur samið við 12 leikmenn fyrir komandi átök í 2. deild karla, en Birgir Örn Birgisson verður þjálfari þeirra í vetur.

Tíu leikmannana koma úr yngri flokka starfi félagsins, en í hópnum eru einnig 2 eldri reynsluboltar sem hafa reynslu frá KFÍ tímanum sem hafa bæst í hópinn og verða þeir með eftir bestu getu, en það eru þeir Helgi Dan Stefánsson og Gunnlaugur Gunnlaugsson.

Það eru þrír ungir og efnilegir leikmenn sem spila í 11.flokki félagsins komnir inn í æfingahópinn, þeir Stefán Albertsson, Árni Árnason og Haukur Fjölnisson og voru þeir að skrifa undir sínu fyrstu leikmanna samninga við félagið. Litlu eldri eru Hjálmar Jakobsson, Frosti Gunnarsson, Jón Shiransson, Elmar Baldursson og Magnús Birgisson. Þá fluttist til svæðisins Kjartan Þorsteinsson frá Þorlákshöfn og er hann í Menntaskólanum á Ísfirði. Egill Fjölnisson hefur svo tekið fram skóna á ný eftir nokkurra ára hlé frá körfubolta.

Reinis Vilks, fyrrum atvinnumaður í körfuknattleik þjálfar 11. flokk félagsins, verður einnig leikmaður meistaraflokksins og er að byrja að spila eftir nokkurra ára hlé.

Fréttir
- Auglýsing -