spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaSemja við son og bróðir þjálfara liðsins

Semja við son og bróðir þjálfara liðsins

Fyrstu deildar félag Breiðabliks hefur samið við Alexander Jan Hrafnsson til næstu tveggja ára.

Alexander er fæddur 2007 og hefur verið hluti af sterkum árgang hjá Blikum, nú síðast 12. og ungmennaflokki. Á síðasta tímabili hóf hann að leika fyrir meistaraflokk Blika og þá var hann í æfingahóp undir 18 ára landsliðs Íslands.

Nýráðið þjálfarateymi Blika feðgarnir Hrafn Kristjánsson og Mikael Máni Hrafnsson ættu að þekkja vel til Alexanders, þar sem hann er yngri bróðir Mikaels og sonur Hrafns.

Fréttir
- Auglýsing -