spot_img
HomeFréttirSeljum okkur dýrt í kvöld

Seljum okkur dýrt í kvöld

Ingi Þór Steinþórsson þjálfari Snæfell er brattur fyrir leik kvöldsins þegar Snæfell tekur á móti Haukum í fjórða leik liðanna.  Veggurinn og bakið og allt það er undir hjá Snæfell en Ingi þór segist hvergi banginn. 

 

"Við nálgumst þennan leik ekkert öðruvísi en hina leikina. Við erum á heimavelli og þar líður okkur best fyrir framan okkar frábæru áhorfendur. Við ætlum okkur að spila betur í leiknum í kvöld en á fimmtudaginn og hef ég óbilandi trú á liðinu. Við ætlum okkur að klára okkar verkefni á heimavelli. Leikmenn beggja liða eru lemstraðir en sem betur fer ennþá með alla útlimi hangandi á líkamanum. Við seljum okkur dýrt í kvöld." sagði Ingi Þór í snörpu viðtali um leik kvöldsins. 

Fréttir
- Auglýsing -