Sara Rún Hinriksdóttir og Phoenix Constanta máttu þola tap í dag fyrir Alexandria í rúmensku úrvalsdeildinni, 52-58.
Eftir leikinn er Phoenix í 6. sæti deildarinnar með 3 sigra og 7 töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 25 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sara Rún fimm stigum, fimm fráköstum og 2 stoðsendingum.
Næsti leikur Söru og Phoenix er á Þorláksmessu gegn Rapid Búkarest.