spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaSara Rún og Faenza töpuðu síðasta leik ársins stórt

Sara Rún og Faenza töpuðu síðasta leik ársins stórt

Sara Rún Hinriksdóttir og Faenza máttu þola tap fyrir Venezia í kvöld í ítölsku úrvalsdeildinni, 71-102.

Faenza er eftir leikinn í 14. sæti deildarinnar með fjóra sigra og tíu töp það sem af er tímabili.

Á 29 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sara Rún 8 stigum, 4 fráköstum og 3 stoðsendingum.

Næsti leikur Faenza er þann 7. janúar gegn Mocalieri.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -