Sara Rún Hinriksdóttir og Phoenix Constanta lögðu Olimpia Brasov í dag í rúmensku úrvalsdeildinni, 90-63.
Phoenix er eftir leikinn í 5. sæti deildarinnar með 31 stig.
Á rúmum 23 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sara Rún 16 stigum, 5 fráköstum, 4 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.
Næsti leikur Söru og Phoenix í deildinni er þann 19. mars gegn Rapid Bucuresti.