Sara Rún Hinriksdóttir og Phoenix Constanta lögðu Targu Mures í kvöld í rúmensku úrvalsdeildinni, 49-54.
Eftir leikinn eru Phoenix í 5. sæti deildarinnar með 9 sigra og 8 töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 32 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sara Rún 16 stigum, 9 fráköstum, 3 stoðsedningum og 3 stolnum boltum.
Næsti leikur Söru og Phoenix er þann 19. febrúar gegn Satu Mare.