Sara Rún Hinriksdóttir og Phoenix Constanta lögðu Rapid Bucaresti í dag í úrvalsdeildinni í Rúmeníu, 37-85.
Eftir leikinn eru Phoenix í 7. sæti deildarinnar með fjóra sigra og sjö töp það sem af er tímabili.
Á um 26 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sara 21 stigi, 11 fráköstum, 3 stoðsendingum og 4 stolnum boltum.
Næsti leikur Söru og Phoenix er þann 8. desember gegn Targu Secuiesc.