Ísland mátti þola tap í kvöld fyrir Grikklandi í næstsíðasta leik sínum í undankeppni EuroBasket 2021, 58-95. Eftir fimm leiki í riðil A leitar Ísland enn að fyrsta sigrinum á meðan að Grikkland hefur unnið þrjá og tapað tveimur.
Karfan spjallaði við Söru Rún Hinriksdóttur, leikmann liðsins, eftir leik í Ljubljana, en hún átti ágætis dag fyrir Ísland. Skilaði 17 stigum og 5 stoðsendingum í leiknum.