spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaSara Rún atkvæðamikil gegn Bologna

Sara Rún atkvæðamikil gegn Bologna

Sara Rún Hinriksdóttir og Faenza máttu þola tap í kvöld fyrir Virtus Bologna í ítölsku úrvalsdeildinni, 67-54.

Eftir leikinn er Faenza í 11. sæti deildarinnar með 6 sigra og 15 töp það sem af er tímabili.

Á rúmum 24 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sara Rún 10 stigum, 2 fráköstum og stoðsendingu.

Næsti leikur Söru og Faenza er þann 4. mars gegn Ragusa á Sikiley.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -