Sara Rún Hinriksdóttir og Phoenix Constanta máttu þola tap í kvöld fyrir toppliði Satu Mare í rúmensku úrvalsdeildinni, 59-87.
Eftir leiki er Phoenix í 5.-6. sæti deildarinnar með þrjá sigra og fjögur töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 29 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sara Rún 17 stigum, 3 fráköstum, 2 stoðsendingum og 5 stolnum boltum.
Næsti leikur Phoenix í deildinni er komandi laugardag 4. desember gegn Uav Arad.