Íslandsmeistarar Vals hafa framlengt samningi sínum við Söru Líf Boama.
Sara Líf er ein allra efnilegasta körfuboltakona landsins og hefur verið að fá stærra og stærra hlutverk í meistaraflokknum á síðastliðnum tímabilum. Hún er að upplagi úr Val og hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands. Þá hefur hún einnig leikið fyrir A landslið Íslands.