Körfuknattleiksdeild Fjölnis í samvinnu við Sambíóin heldur enn eitt árið stórmót í körfuknattleik fyrir yngstu iðkendurnar.
Í ár eru 117 lið sem taka þátt frá 14 félögum víðsvegar um landið. Búast má við um 600 þátttakendum ásamt fjölskyldum þeirra.
Þátttakendur á mótinu eru stelpur og strákar fædd 2004 og síðar.
Mótið fer fram helgina 31. október og 1. nóvember 2015 í Grafarvoginum.
Að venju verður ekki keppt um sætin og stigin eru ekki talin opinberlega, heldur verður það leikgleðin sem ræður ríkjum og fá allir keppendur verðlaunapening að móti loknu. Mót þetta hefur skipað sér sess í stórmótum vetrarins og þar má jafnan sjá fullt af væntanlegum stórstjörnum, bæði hjá stelpum og strákum.
Þarna sjást oft tilvonandi þjálfarar í efstu deildum sem gjarnan stíga sín fyrstu skref með yngri körfuboltakrakka.
Meira á sambiomot.wordpress.com