Heimsmeistaramót kvenna hófst í gær með fyrstu leikjum riðlakeppninnar. Mótið fer fram á Tenerife á Spáni en þetta er í átjánda skipti sem mótið fer fram.
Framundan er gríðarleg dramatík á mótinu en hún var ekkert minni á degi tvö þegar Senegal og Nígería skrifuðu sig í sögubækurnar með sigrum.
Nigeria beat Turkey and earn their first-ever win at a FIBA Women’s Basketball World Cup!
Final score: 74-68 #FIBAWWC pic.twitter.com/oFy4wSkRHT
— FIBA (@FIBA) September 23, 2018
Úrslit frá degi tvö:
Argentína 43-84 Ástralía
Kanada 82-63 Suður Kórea
Belgía 75-77 Japan
Senegal 70-69 Lettland
Frakkland 75-71 Grikkland
Kína 88-100 Bandaríkin
Spánn 78-53 Puerto Rico
Nígería 74-68 Tyrkland
Síðasti dagur riðlakeppninnar er á morgun og er gríðarlega spenna á flestum vígstöðum. Hægt er að lesa hér um alla mögulega niðurstöðu í riðlunum hér.
FIBA sendi frá sér samantektarþátt frá degi tvö sem má finna í heild sinni hér að neðan: