spot_img
HomeAðsentSaman erum við ósigrandi

Saman erum við ósigrandi

Í 20. grein laga KKÍ segir að formaður KKÍ skuli kappkosta að ávallt séu sem best tengsl og  samstarf á milli sambandsins og aðildarfélaga. Í starfi mínu undanfarin misseri sem  formaður hagsmunasamtaka félaga í efstu deildum karla og kvenna, ÍTK, hef ég kappkostað  og lagt sérstaka áherslu á farsæla samvinnu báðum til hagsbóta. Þetta kom skýrt fram  þegar unnið var fyrir nokkru að nýjum og stórbættum samningum um sjónvarps-, gagna og  veðmálarétt, en þar náði KKÍ umtalsverðum árangri með liðinni og stuðningi félaganna  innan ÍTK. Sama á við um markaðsréttarsamninga.  

Það kom okkur innan ÍTK því mikið á óvart að heyra af umræðu um að markmið samtakanna  sé að taka yfir KKÍ svo að starfsemi KKÍ og ákvarðanataka muni taka fyrst og fremst mið af  hagsmunum efstu deildar félaganna. Þetta er hreinlega fráleitt. Við erum körfuboltafólk fyrst og fremst, sjálfboðaliðar sem halda gangandi þróttmiklu starfi í mörgum af öflugustu  félögum landsins. Við höfum hag körfuboltans númer 1, 2 og 3 að leiðarljósi. Við skiljum vel  allar þær áskoranir sem hreyfingin stendur frammi fyrir, erum lausnamiðuð og viljum vinna  þétt saman með KKÍ að framgangi okkar frábæru íþróttar. 

Ég hef verið formaður ÍTK á þeim stutta tíma sem þau hafa starfað. Á þeim vettvangi hef ég  unnið ötullega að því að vinna að hagsmunum efstu deildar félaganna líkt og helsta  markmið samtakanna kveður á um. Þar höfum við átt farsælt samstarf við KKÍ eins og  minnst er á hér að ofan. Það mun ekki breystast meðan ég er formaður ÍTK. Nú er það svo  að ég er einn tveggja frambjóðanda til formanns KKÍ. Verði ég kosinn til þess ábyrgðarstarfs  mun ég í fyrsta lagi segja af mér sem formaður ÍTK, sem segir sig í raun sjálft, og í annan  stað vinna ötullega að hagsmunum ALLRA félaga innan KKÍ. Því get ég lofað. 

Sú staða sem íslenskur körfubolti er í núna er með mjög sambærilegum hætti og var til  staðar í íslenskum fótbolta fyrir fáeinum árum. Félögin í efstu deildum vildu njóta sem mest  þeirra tekna sem þau voru að skapa með beinum hætti. Þess vegna voru þessi  systursamtök ÍTK, Íslenskur toppfótbolti, ÍTF, stofnuð á sínum tíma. Þau hafa staðið að afar  jákvæðum breytingum þar, margfaldað tekjur og breytt allri markaðsnálgun til hins betra  þannig að á örskömmum tíma er Besta deildin orðin eitt þekktasta og eftirsóttasta  vörumerki innan íþrótta. Svo að það sé sagt: ÍTF hefur aldrei lagt til eða reynt að yfirtaka starfsemi KSÍ. 

Eins og áður sagði er ég sem einstaklingur og óbilandi körfuboltaáhugamaður í framboði til  formanns KKÍ fyrir þing hreyfingarinnar þann 15. mars næstkomandi. Ef ég verð kosinn mun  ég vinna af fullum heilindum fyrir hreyfinguna í heild sinni og leggja mitt af mörkum svo að  framtíð íslensks körfubolta verði eins og best verður á kosið. Saman erum við ósigrandi !

-Kjartan Ásmundsson frambjóðandi til formanns KKÍ

Fréttir
- Auglýsing -