spot_img
HomeFréttirRuslið og Karfan í eina sæng

Ruslið og Karfan í eina sæng

 Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftur eru fréttir frá “Ruslinu” byrjaðar að birtast hér á okkur á Karfan.is  Á síðastliðinum mánuðum hafa staðið yfir viðræður milli Karfan.is og Ruslsins um samruna þessara tveggja risa körfuknattleiksmiðla.  Samningar hafa náðst og hér eftir munu fréttir Ruslins birtast á Karfan.is  Ruslið mun hinsvegar áfram vera með sína Tíst (Twitter) og Facebook síðu. 
 
Í samtali við Karfan.is sagðist [email protected] vera himinlifandi að fá Ruslið í lið með okkur hér.  ”Þetta er frábær viðbót við síðuna hjá okkur. Hörður hjá Ruslinu er með ógrynni af skemmtilegum fréttum og segir skemmtilega frá hlutunum.  Mér í raun líður eins og einhverju félagsliði hérna á landinu nýkomnir með nýjan kana.” sagði Jón Björn og ítrekaði þar með þann styrk sem Karfan.is er að fá.
 
Við bjóðum hér með Ruslið velkomið á Karfan.is
 
Eins og sjá má er nýr flipi efst á síðunni þar sem hægt er að nálgast allar fréttir frá Ruslinu.
 
Mynd:  Á myndinni má sjá þá Jón Björn og Hörð kvitta undir samrunann.
Fréttir
- Auglýsing -