Eins og þegar karlalið nágrannafélagana í Reykjanesbæ mættust á dögunum þá voru það Keflvíkurstúlkur sem tóku öll stigin sem í boði voru þegar Keflavík B tók á móti ljónynjunum úr Njarðvík í Blue höllinni við Sunnubraut í dag. Leikurinn var sveiflukenndur og æsispennandi fram á lokasekúndur en að lokum náðu heimastúlkur að kreista fram fimm stiga sigur, 62-57.
Karfan spjallaði við þjálfara Njarðvíkur, Rúnar Inga Erlingsson, eftir leik í Blue Höllinni.