Róbert Sean Birmingham og ungmennalið Baskonia lagði í kvöld Racing Santander í EBA deildinni á Spáni, 78-51.
Baskonia eru eftir leikinn í efsta sæti deildarinnar með 11 sigra og 2 töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 11 mínútum spiluðum skilaði Róbert Sean þremur stigum og frákasti.
Næsti leikur Baskonia í deildinni er þann 12. desember gegn Egues.