spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaRóbert Sean og Baskonia unnu sinn áttunda leik í röð í dag...

Róbert Sean og Baskonia unnu sinn áttunda leik í röð í dag í EBA deildinni á Spáni

Róbert Sean Birmingham og ungmennalið Baskonia unnu Valle de Egues í dag í EBA deildinni á spáni, 62-100.

Baskonia er sem áður í efsta sæti deildarinnar með 12 sigra og 2 töp það sem af er tímabili, en sigurinn í dag var þeirra áttundi í röð.

Á tæpum 13 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Róbert 6 stigum og 3 fráköstum.

Næsti leikur Róberts og Baskonia í deildinni er þann 18. desember gegn Mondragon.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -