spot_img
HomeFréttirRiley mun snúa aftur

Riley mun snúa aftur

12:29 

{mosimage}

 

 

Gert er ráð fyrir því að þjálfari Miami Heat, Pat Riley, snúi aftur til starfa með meistaraliði Miami eftir Stjörnuleikjahelgina sem fram fer næstu helgi í Las Vegas. Riley hefur verið frá þjálfun liðsins síðan 3. janúar því hann þurfti í aðgerð á hné og á mjöðm.

 

Talið er samkvæmt heimildum vestra að Riley stjórni Miami að nýju þann 21. febrúar gegn Houston Rockets. Ron Rothstein hefur verið með Miami í fjarveru Riley en Rothstein er aðstoðarþjálfari liðsins. Heat hafa unnið síðustu sex leiki af sjö undir stjórn Rothstein en þegar Riley fór frá hafði liðið unnið 13 leiki en tapað 17.

Fréttir
- Auglýsing -