spot_img
HomeFréttirRicky Rubio tryggði Spánverjum Evrópumeistaratitilinn síðasta sumar

Ricky Rubio tryggði Spánverjum Evrópumeistaratitilinn síðasta sumar

11:27 

{mosimage}

 

 

Í sumar tóku strákarnir í U-90 þátt í evrópukeppni yngri landsliða á Spáni.  Í lok mótsins fóru þeir á úrslitaleikinn þar sem Rússland og Spánn mættust.  Leikurinn var mjög sögulegur og var Ricky Rubio stjarna mótsins.

Úrslitaleikurinn á EM U-90 síðastliðið sumar var einn magnaðasti leikur sem leikinn hefur verið.  Leikurinn var tvíframlegndur og stóð stjarna mótsins Ricky Rubio heldur betur undir allri þeirri pressu sem á hann var sett.  Í mótinu sjálfu hafði hann verið að leika stórvel og oft á tíðum sett upp fáheyrðar tölur.  Hann kom inní húsið ásamt liði sínu einsog kóngur og var hann hylltur af 4500 manns í troðfullu íþróttahúsi í Andalusiu á spáni.  

Hægt er að lesa nánar um þennan magnaða Spánverja í skemmtilegri grein á www.kr.is/karfa eða með því að smella hér.

Fréttir
- Auglýsing -