Stjarnan hefur samið við Jaka Klobucar um að leika með liðinu á yfirstandandi tímabili í Bónus deild karla.
Jaka er 198 cm slóvenskur bakvörður/framherji sem kemur til Stjörnunnar frá Olimpija í heimalandinu. Líkt og aldurinn gefur til kynna er Jaka nokkuð reynslumikill atvinnumaður, en hann hefur meðal annars leikið fyrir lið í efstu deildum í Grikklandi, Þýskalandi, Frakklandi og Tyrklandi. Þá var hann um árabil hluti af sterku landsliði Slóveníu.
Tilkynning:
Jaka Klobučar er reynslumikill körfuboltamaður frá Slóveníu. Hann á að baki langan og farsælan feril og hefur leikið með stórliðum í Evrópu. Einnig var hann hluti af A-landsliði Slóveníu á árunum 2007 til 2017.
Jaka er fjölhæfur bakvörður sem getur spilað margar stöður á vellinum. Hann er einnig þekktur fyrir sterkan varnarleik og ætti því að passa vel inn í hópinn hjá Stjörnumönnum.
Við að sjálfsögðu tökum vel á móti honum, en næsti leikur er útileikur gegn Grindavík á fimmtudaginn!