7:40
{mosimage}
Valsstúlkur
Reykjavíkurmót kvenna er nú í fullum gangi og um helgina fór fram einn leikur, KR sigraði Fjölni 85-67 í Grafarvoginum. Á fimmtudag sigraði Valur Fjölni 73-50.
Monique Martin var stigahæst KR stúlkna á laugardag með 38 stig auk þess að taka 11 fráköst. Slavica Dimovska var stigahæst Fjölnisstúlkna með 23 stig. Nánar um leikinn á heimasíðu KR.
Slavica var einnig stigahæst Fjölnisstúlkna á fimmtudag gegn Val en þá skoraði hún 19 stig. Berglind K. Ingvarsdóttir var stigahæst Valsstúlkna með 21 stig.
Mótið heldur áfram í kvöld þegar Valur og Ármann/Þróttur mætast. Það er þó orðið ljóst að leikur Vals og KR sem fram fer í Vodafonehöllinni á miðvikudag verður úrslitaleikur mótsins.
Mynd: www.valur.is