Undir 16 ára stúlknalið Íslands mátti þola tap gegn Bosníu og Hersegóvínu á Evrópumótinu í Konya í Tyrklandi í dag, 72-83. Leikurinn var lokaleikur liðsins á mótinu, en niðurstaðan að lokum var fjórtánda sætið.
Fréttaritari Körfunnar í Konya ræddi við þær Huldu Agnarsdóttur, Rebekku Steingrímsdóttur og Ingu Ingadóttur í dag um leikinn gegn Bosníu og niðurstöðu liðsins á mótinu.