7:25
{mosimage}
Helgi Freyr Margeirsson og félagar í Randers Cimbria eru dottnir út úr dönsku bikarkeppninni en þeir töpuðu í gær á útivelli gegn bikarmeisturum og Danmerkurmeisturum Bakken bears 69-73.
Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann en það var í blálokin sem fyrirliðinn og reynsluboltinn Jens Jensen tryggði Bakken sigur.
Helgi Freyr komst ekki á blað yfir stigaskorara í gær en hann var í villuvandræðum allan leikinn.
Mynd: www.basketligaen.dk