Í þessum skrifuðu orðum er í gangi viðureign Boston Celtics og meistara Miami Heat þar sem staðan er 60:57 heimamenn í Boston í vil. En þær skelfilegu fréttir voru að berast af Rajon Rondo hinum geysi efnilega leikstjórnanda Boston er að allar líkur eru á því að hann hafi slitið krossband í leik síðastliðin föstudag gegn Atlanta Hawks og það mun þýða að kappinn er úr leik í það minnsta næstu 6 mánuði.
Þetta kom í ljós núna í beinni útsendingu frá leiknum þar sem fréttamenn ESPN greindu frá. Rondo reyndi að hita upp fyrir leikinn í kvöld en var sárþjáður og haldið var með hann á New England Baptist spítalan í Boston þar sem hann var myndaður bak og fyrir. Gríðarleg blóðtaka fyrir þá grænklæddu sem hefur ekki gengið sem skildi í síðastliðnum leikjum.