spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaRajic yfirgefur Njarðvík - Á leið til Hamars

Rajic yfirgefur Njarðvík – Á leið til Hamars

Njarðvík og Julijan Rajic hafa komist að samkomulagi að rifta samningi við leikmanninn. Frá þessu var greint á heimasíðu Njarðvíkur rétt í þessu.

Rajic var með 7,1 stig og 4,9 frákast að meðaltali í leik en hann lék um 15 mínútur í leik. Julijan verður hinsvegar áfram í snjónum á Íslandi því hann hefur komist að samkomulagi við Hamar um að leika með liðinu út tímabilið.

Á heimasíðu Njarðvíkur segir: “Julijan verður seint sakaður um að vera ekki góður liðsmaður og prýðis piltur í alla staði. En hraður leikur liðsins var kannski það helsta sem að vafðist fyrir Julijan og því var ákveðið að leyfa honum að finna sér nýtt verkefni.  Julijan er þakkað fyrir sín störf fyrir klúbbinn og við óskum honum velfarnaðar á nýjum stað.”

Fréttir
- Auglýsing -