Íslenska karlalandsliðið leikur á morgun gegn heimamönnum í Svartfjallalandi í forkeppni undankeppni HM 2023. Leikurinn sá þriðji sem Ísland leikur í sóttvarnabúbblunni í Podgorica, en áður höfðu þeir unnið Dani, en tapað fyrir Svartfellingum.
Tvö lið munu komast upp úr riðlinum og áfram í undankeppnina sem hefst í nóvember, en eitt sitja eftir.
Hérna er 14 manna hópur Íslands
Leikurinn er kl. 18:00 og verður hann í beinni útsendingu á RÚV 2. Þá verður einnig fjallað um hann hér á Körfunni, þar sem einkunnir, umfjöllun og viðbrögð þjálfara og leikmanna verða aðgengileg laust eftir leik.
KKÍ birti fyrr í dag viðtal við miðherja liðsins Ragnar Nathanaelsson sem hefur verið veikur síðustu daga, en segist allur vera að koma til.