Lið Hauka í efstu deild kvenna í körfuknattleik verður fyrir blóðtöku á næsta keppnistímabili en miðherjinn Ragna Margrét Brynjarsdóttir mun reyna fyrir sér í Svíþjóð. Ragna er unnusta Pavels Ermolinskij sem samdi við sænsku meistarana í Sundsvall í sumar. Morgunblaðið og www.mbl.is greina frá þessu í dag.
Ragna hefur ákveðið að fylgja Pavel og er búin að hafa samband við lið í Sundsvall. Ekki er þó um sama félag að ræða og það sem Pavel mun leika fyrir en þar leika einnig Hlynur Bæringsson og Jakob Sigurðarson. Ragna sagðist í samtali við Morgunblaðið lítið vita um styrkleika liðsins nema að það spilar í næstefstu deild. Hún sagði sænska landsliðið yfirleitt hafa verið sterkara en það íslenska og þar væri meira úrval af hávöxnum leikmönnum.
Ragna var í lykilhlutverki hjá Haukum á síðustu leiktíð og var valin í lið ársins á lokahófi KKÍ. Hún mun því skilja eftir sig stórt skarð í liði Hauka sem einnig hafa misst Telmu Björk Fjalarsdóttur til Vals.