Ragna Margrét Brynjarsdóttir vinnur nú að því að koma sér aftur á parketið en hún hefur mætt á æfingar hjá Stjörnunni síðustu misseri. Frá þessu er greint á Mbl.is í morgun.
Höfuðhögg hafa haldið Rögnu Margréti frá leik síðan snemma ársins 2018 og ákvað hún að taka sér pásu frá boltanum í sumar. Hún hefur leikið með Stjörnunni síðustu ár og verið með liðinu síðustu vikur.
„Ég er að koma mér af stað aftur, hægt og rólega, og er farin að vera með á æfingum á nýjan leik. Það er eitthvað í það að ég muni spila minn fyrsta leik en það kemur að því á endanum. Ég er alls ekki hætt og ég mun spila körfubolta á nýjan leik, það er bara spurning hvenær,“ sagði Ragna Margrét í samtali við mbl í gær.